Ef ég fengi vandamál heimsins í hendurnar....
Merkilegar síður
14.03.2006 18:53:52 / piscine

This too ...

...shall pass

Þessi setning fær mig til að hugsa um gamaldags herramann, sem segir þetta með stóískri ró, alveg sama á hverju dynur.. svona djúpri, rólegri röddu: This too shall pass. Og öllum líður betur... er það ekki? :haha:

Ég er í fríi í mínum venjulegu skólatímum út þessa viku. Ég er líka búin að þrífa herbergið mitt hátt og lágt og taka til í fataskápnum okkar mæðgna. Við það verk komst ég að því að Margrét Rún á fleiri og flottari flíkur en ég. En það er nú ekkert nýtt. Hins vegar ef einhver þekkir stelpu sem getur notað svona sjö þúsund boli í stærð 122 má alveg láta mig vita sko... er líka með útigalla og skó... ;)

Dóttur minni er næstum því batnað, hún er enn svolítið kvefuð og þreytist auðveldlega, en fyrir utan að vera alveg brjáluð yfir því að mega ekki fara út og þar af leiðandi ekki í frímínútur og ekki í skólasund hefur hún það bara ágætt. Biður að heilsa. Hún fer til Þýskalands í júní, býst ég við...

Ég kenndi ömmu á veftivi... það er á dagskrá að kenna henni á skjárinn.is og ruv.is og þá eykst mitt áhorf til muna, hugsa ég ;)

Hafið það gott... og ekki-kvenfélag... mig langar í HITTING!!

P.s. Tók skyndiákvörðun um að búa til nýja bloggsíðu... http://isberg.hexia.net/  

Nota hana amk fyrst um sinn... er að prófa mig áfram.


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 13:27:36 / piscine

5 reyklausar vikur!!

Orðin impotent fury eru orð dagsins í dag og í gær, það er næsta víst. Það er vont að vera reiður, verra að geta ekkert gert í því...

Ég fór í leikhús á föstudaginn, sá Hilmi Snæ brillera í "Ég er mín eigin kona" í Iðnó. Fékk boðsmiða í vinnunni og rifjaði upp hvað það er gaman að fara í leikhús. Ætla aftur í næsta mánuði... spurningin er bara:  Belgíska kongó eða Alveg brilliant skilnaður??


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 13:26:40 / piscine

Kannanir, kannanir!!

Mig langar til að deila svolitlu með ykkur. Eins og þið sjálfsagt vitið er ég fyrrum starfsmaður fyrirtækis sem hefur með alls kyns kannanir að gera. Mér hefur oft fundist fyndið hvernig spurningarnar eru orðaðar í könnununum og einstaka sinnum hafa málfræðivillur slæðst með (sem auðvitað, eins og alþjóð veit, fara svo mikið í mig að ég bara GET ekki horft framhjá þeim.)

Ég fæ oft tölvupósta á háskólamailið mitt sem biðja mig um að taka þátt í einhverjum könnunum. Venjulega er þá kynnt fyrir hvern könnunin er og í hvaða tilgangi, og þar sem þetta er oftast fyrir lokaverkefni eða einhvers konar verkefni, tel ég venjulega ekki eftir mér að eyða nokkrum mínútum í þetta. Kannanirnar eru auðvitað misvel unnar, en venjulega eru þær alveg ágætar.

Í gær hins vegar fékk ég eftirfarandi tölvupóst, sem eins og aðrir biðja mig að taka þátt í svona könnun:

Kæri viðtakandi
>
> Ef þú hefur nokkrar lausar mínútur væri það frábært ef þú gætir tekið þátt
> í þessari könnun sem tengist skoðunum þínum á tímaritum, markaðssetningu
> og vöruþróun.
Með fyrir fram Þökkum
>
> Kv.
> *Nafn stúlkunnar sem stendur fyrir könnuninni*

Ég, að venju, var alveg til í að leggja stúlkunni lið. Þó að það stæði ekki í hvaða tilgangi könnunin væri gerð eða fyrir hvern. Ég ákvað að líta framhjá því og taka könnunina.

Hér koma dæmi um spurningar, teknar BEINT upp úr könnuninni, algerlega óbreyttar:

4. Hversu oft Kaupirðu blöð/tímarit

10. Hvað af eftirtalandi tímaritum þekkir þú, af eigin reynslu eða úr auglýsingum?

11.


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 16:04:18 / piscine

Hress grís, Robin Williams og Sjálfstæðisflokkurinn

Jæja, grísinn minn er orðinn svívirðilega hress. Henni hundleiðist. Hún hoppar og dansar og vill út.. en hún er bara ennþá hóstandi og með hita og kvef... svo hún fær ekkert að fara.

Við horfðum á Jumanji í dag, mæðgur, og hún var bara fín. Við, eins og amma, höldum mikið upp á Robin Williams. Margrét varð svolítið hrædd... en mömmunni finnst gaman að geta horft á "alvöru" myndir með anganum sínum.

Ég horfði á kastljósþáttinn með næringarþerapistanum úr Heil og Sæl áðan. Ég horfði líka á þáttinn sem styrinn stóð um og fannst þessi kona tala mikið niður til sinna áhorfenda. Sérstaklega fannst mér apalegt þegar hún talaði um að sykurinn blandaðist við blóðið og breytti frumunum í karamellu... Heldur hún að hún sé að kenna fjórða bekk? Mér fannst hún líka koma illa fyrir í kastljósinu. Var alltaf að grípa fram í og var á engan hátt í neinum umræðum.

Ég gerði aðra tilraun í dag til að fá botn í veru mína í Sjálfstæðisflokknum, sendi ss annan tölvupóst þar sem ég hef ekkert svar fengið við hinum:

Kæra Bryndís.

Hildur Ýr Ísberg heiti ég. Ég sendi þér bréf fyrir nokkrum vikum síðan um nauðuga veru mína í sjálfstæðisflokknum og ósk mína um að komast úr honum. Ég hef ekkert svar fengið.

Þætti mér vænt um ef hægt væri að greiða úr þessu sem fyrst.

Með kveðju, Hildur Ýr Ísberg

Það er nú það... spurning hvort maður fái svar við þessu?


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 23:15:16 / piscine

Önnur tilraun...

Ég var búin að skrifa helling... en það hvarf. Og svona einu sinni gleymdi ég að kópera það... snjallt, ekki satt?

Ég nenni ekki að skrifa allt aftur... bara aðalatriðin.

Margrét er enn veik, en svona að batna. Hún er orðin rétt nægilega hress til að láta sér leiðast.

MÉR leiðist.

Tölvupóstar, sérstaklega frá vinnuemaili, geta ekki talist einkabréf.

Oooog... gestur nr. 3000 nálgast... láttu vita af þér nr. 3000, verðlaun í boði ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 19:16:35 / piscine

Meiri meiri veikindi...

Margrét er ennþá veik. Sem betur fer er blessað barnið alltaf ákaflega þægt í veikindum... annars væri ég búin að "hoppa út um gluggann" eins og Sandra segir. Ekki það, það myndi svo sem ekki skila miklu þó ég gerði það, stofuglugginn er lengst frá jörðu og ég hefði í mesta lagi ökklabrot upp úr því að kasta mér út um hann..;)

Hún hefur höfuðverk, bakverk, beinverki, hita, hún kastar upp... það er eeeendalaust af einkennum með þessari flensu. Barnið hefur lítið sem ekkert borðað í þrjá daga... það er nú það.

Ég er búin að vera ósköp dugleg að læra á meðan... sem er ágætt, þar sem ég kemst ekki í vinnuna. Ætla að gefa skólanum frí og reyna að klára undirbúning þessarar viku í fyrramálið.

Ég las umræddan tölvupóst Jónínu Ben í morgun, og mikið óskaplega er þessi kona ósvífin... maður þarf ekki að vera mjög læs á letur milli lína til að sjá að þarna er kona á ferð sem veit nákvæmlega hvað hún er að gera... Talar meðal annars um siðleysi Jóhannesar.. í ástríðufullu tölvubréfi til gifts manns... Hmm.. ætli hún viti hvað siðleysi þýðir? Nei, bara pæling, sko..

Úff.. ég er að verða verri í stafsetningu með aldrinum :whut: Það gerist aftur og aftur að ég sendi frá mér texta með stafsetningarvillum... sem þýðir að ég ekki bara skrifa þær, heldur les textann yfir án þess að taka eftir þeim... What´s happening to the world??


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 19:56:57 / piscine

Veikindi...

Prinsessan er veik. Liggur bara og mókir, neitar að borða og er eins og lítill krummi hún er svo hás. Hún er með háan hita, sem neitar að lækka neitt að ráði þrátt fyrir hitastillandi. Fékk hitaflog í gærkvöldi. Æi, já.. við erum litlar í okkur í dag hér... :^)

Mánuður síðan ég reykti síðast... og mig langar ennþá til að reykja. What´s up with that? :evil: Ekki það...þetta stórskánar svo sem... löngunin minnkar með hverju skiptinu. Núna er þetta líklega bara þreyta, ég vakti yfir Margréti í nótt, þorði ekki að fara að sofa af ótta við að hún fengi hitaflog ef ég legði mig.. Svona eru mömmur klikkaðar... það er nú það.

Magnea klippti mig í dag... það var skrautlegt ástand á stofunni hjá henni í dag, en hún var ein að sýsla þar, það eru víst veikindi á fleiri heimilum en mínu. Hún stóð sig vel stelpan, eins og alltaf.. en skammaði mig fyrir að eiga ekki alminlegt sjampó... svo ég geri ráð fyrir að ég verði að kaupa svoleiðis... :$


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 20:16:49 / piscine

Hugleiðingar helgarinnar

Jæja, ég er bara varla búin að fara á netið í marga daga.. og það er í sjálfu sér ágætt. Fríhelgi hjá mér.. Margréti var boðið í sumarbústað með Gunnu, Helga og co. og hún þáði það með þökkum.

Á meðan er ég búin að sofa heilmikið, mun meira en venjulega, ég er búin að fara í bílferð út fyrir bæinn, kaupa mér ís báða dagana... horfa á allt Monty Python safnið... segið svo að ég noti mér ekki mömmufríið þegar það fæst.

Ég er ótrúlega heppin að eiga góða að. Það er aldrei erfitt að fá pössun fyrir dömuna. Ég kemst yfirleitt þangað sem ég vil.

Það stóð nú til að kíkja á skemmtanalífið þessa helgina með henni Filippu, en ég fékk svæsna sýkingu í augað og treysti mér ekki út "fínt" með brotnu gleraugun mín. Þannig að það verður að bíða betri tíma...

Ég var að heyra að nýjasta orðið fyrir fólk sem flytur hingað til landsins sé "landnemar". Þetta er nú komið út í algera vitleysu... orðið "nýbúar" var á sínum tíma búið til af því að orðið "innflytjendur" þótti orðið neikvætt og nú er "nýbúar" greinilega orðið skammaryrði líka. Væri ekki nær að ráðast á fordómana í þjóðfélaginu í staðinn fyrir að búa til fleiri og fleiri orð sem lýsa brjálæðislegri pólitískri rétthugsun?

Hvenær ætlar fólk að átta sig á að pólitísk rétthugsun er bara enn ein leiðin til að gera eitthvað að "tabú"?

En jæja, allt um það, klipping hjá Magneu minni á morgun, ég verð sjálfsagt svo fín að þið þekkið mig ekki aftur næst þegar þið sjáið mig..

Það er líka annar merkisdagur á morgun... þá verður mánuður síðan ég hætti að reykja! Að vísu stuttur mánuður, bara 28 dagar, en mánuður er mánuður!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 21:18:06 / piscine

23 dagar... but, þúst... who´s counting anyway? :P

Ég fór og keypti myndavél í dag. Myndavél... nananana... ég bendi ykkur á að kíkja reglulega á www.prinsessan.barnaland.is héðan í frá... ætla að skella inn Öskudagsmyndum í kvöld.

Ástæða þess að ég hef efni á að kaupa myndavél?

Ég er búin að vera hætt að reykja það lengi að ég á inni fyrir henni!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 17:14:10 / piscine

Liggaliggalá!

Þrjár vikur! Þrjár vikur! Þrjár vikur!

Ekki orð um það meir... ;)

Ég ræddi femínisma í vinnunni í dag. Því miður vorum við bara tvær á kaffistofunni og vorum við alveg næstum því sorglega sammála. Engar áhugaverðar umræður þar..

Bolludagur, já. Ég á sextíu bollur. Heimilisfólk hér vildi að ég bakaði fleiri. Ég neitaði. Dæmið mig að vild. Við búum þrjár hér... hver ætlar að borða meira en sextíu bollur, ég bara spyr? Ég er farin að taka upp á því að hringja út og suður og grátbiðja fólk um að koma í bollukaffi því amma er veik og Margrét borðar ekki sextíu... :S

Svo ef ykkur langar í rjómabollur, þá verður heimsendingarþjónusta milli 18 og 19 :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 22:53:09 / piscine

þrjár vikur á morgun...

Notaleg helgi að klárast. Ég svaf í 12 tíma sl nótt, bakaði bollur í dag, fór í slátur til Gunnu frænku, horfði á litla snillinginn hann Úlf hlaupa...

Það virðist ekki öllum þykja það jafn mikið kraftaverk og mér að hann skuli getað gengið... en mér finnst það. Einhverra hluta vegna er mér algerlega fyrirmunað að taka því eins og hverjum öðrum hlut... kannski af því að ég og amma erum einu manneskjurnar utan foreldra hans sem mega halda á honum og kannski af því að hann brosir svo fallega... Ég veit það ekki. En hann á mikið í mér, strákurinn, eins og raunar öll börnin :)

Mér finnst lagið með Silvíu Nótt snilld. Mér finnst frábært að við skulum loksins ætla að senda eitthvað sem OKKUR finnst sniðugt og fyndið í staðinn fyrir eitthvað útreiknað rusl sem á að ganga í augun á öðrum... mér er slétt sama hvort útlendingsdruslurnar skilja það eður ei.


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.02.2006 17:32:08 / piscine

Það er algjör vitleysa... tralalalala

Hrmph... mig langar ekkert að reykja í dag! Skil ekkert í þessu veseni á mér í gær. Ég var eins og algjör aumingi. En það er liðið hjá :D

Úlfur Ísberg, stórfrændi minn, sem varð eins árs 4. janúar síðastliðinn er farinn að ganga. Hann sýndi mér þetta kraftaverk áðan, ásamt því að sýna mér hvað hann væri sterkur, stór, að hann kynni að klappa saman lófunum og segja "hisi" (kisi).

Ennfremur er dóttir mín farin að geta lesið í hljóði og farin að ná skuggalega hátt á móðurinni... ég meina, ég VEIT ég er ekkert stór sko... en mér finnst að hún ætti að verða meira en sjö þegar hún fer að ná mér í öxl...

Þetta er skuggaleg þróun... en mikið er alltaf gaman að vera með börnum þegar þau hlæja. Ef það væri hægt að setja barnshlátur á flöskur yrði aldrei neinn þunglyndur, held ég...


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 15:41:25 / piscine

Úr ýmsum áttum...

"Reykelsisbindindið" eins og Sandra kallar það, stendur ennþá. En í dag er það erfitt. Jafn erfitt og fyrstu dagana. Ég er viðþolslaus, eirðarlaus.. mig langar svo... Ég lýg því ekki að ég er bítandi í puttana á mér... Úff :S Ég hélt að svona dagar yrðu búnir núna... En þetta líður vonandi hjá.

Við ætlum til mömmu í mat í kvöld. Hún bauð biluðu dóttur sinni í mat og Idol, svo ég fæ að sjá Idolið í fyrsta skipti þennan veturinn. Margrét verður svo eftir þar, svo ef einhver er einmana í kvöld... hringja í mig :D Ég er laus! ;)

Annars tókst mér að draga mömmu í bæinn á rölt í hádeginu í dag... við röltum, kíktum í búðarglugga og settumst svo niður í kaffi. Ég held þetta sé í fyrsta skipti árum saman, gott ef ekki síðan ég flutti að heiman fyrir 9 árum, að við mamma gerum eitthvað svona bara tvær. Voða næs bara :D

En ég ÆTLA ekki að reykja meira... not going to...


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 13:40:48 / piscine

The lessons of love...

Taron, stórvinur minn og fyrrum nemandi í flóttamannabúðunum dönsku, hefur fengið dvalarleyfi í Danmörku! Ég hef ekki orðið svona glöð lengi, eins og ég varð þegar hann sagði mér það í gær. Hann kemur frá Armeníu og hefur, ásamt fjölskyldu sinni þurft að þola ýmislegt. Þar af er ekki síst óöryggið sem þau hafa búið við síðastliðin þrjú ár, en þau hafa flækst á milli danskra flóttamannabúða, alls óörugg um hvort þau fengju þar hæli eða ekki. Þau búa núna á Fjóni og Taron fer hratt fram í dönskunni, en hann talaði hana reyndar alltaf stórvel.

Börnin sem ég kenndi þarna eru jákvæð fyrir skólavistinni. Þetta eru einu börnin sem ég veit um þar sem heimsending er raunveruleg refsing. Skólinn er þeim vin í eyðimörk, hann er jákvæður staður þar sem þau fá aðhald og væntumþykju. Þau sýna væntumþykju og gleði tilbaka ... ég hef aldrei verið föðmuð jafn mikið og þarna, og aldrei lent í því að nemendur sem svari rétt stökkvi upp í dans af einskærri gleði.

Börnin þarna voru mjög músíkölsk og listræn. Það var stutt í söng og tjáningu hjá þeim. Þau vildu öllum vel, allflest og þó þau hefðu flestöll sína galla líka náði skólinn því setta marki að koma fram við þau sem einstaklinga, og það skilaði sér.

Ég man eftir nemanda mínum, átta ára gömlum sem fótbrotnaði á fótboltaæfingu og fékk ekki tíma á sjúkrahúsi fyrr en daginn eftir. Morguninn eftir kom faðirinn með hann í skólann og sagði: Má hann ekki vera hér? Hann vill endilega koma?

Mér finnst það besta vera að þessar "lessons of love" sem ég lærði í Danmörku skila sér inn í líf mitt og starf hér. Ég er öðruvísi eftir að hafa unnið þarna, eftir að hafa kynnst þessu stórgóða fólki og tekist á við erfiðleika sem sönnuðu gömlu biblíutilvitnunina "ástin sigrar allt". Ég hef lært að láta mér þykja vænt um fólk, líka þegar ég er ekki sammála því eða get ekki fellt mig við það.

Kannski er þetta væmið. En ég get ekki að því gert að hugsa að ef við gætum öll haft þetta að leiðarljósi, að koma fram við hvert annað eins og einstaklinga, að setja væntingar á hvert annað sem einstaklinga, væri mun einfaldara og fallegra að lifa.


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 08:15:15 / piscine

Tvær vikur!!

Hmm... í dag eru víst liðnar tvær vikur síðan ég hætti að reykja. Hélduð þið að ég gæti þetta? Ekki ég, enda er ég allan tímann búin að gera þetta frá degi til dags... :D

Þetta er hins vegar "auðveldara" en ég hélt, þó auðvelt sé það auðvitað ekki. Hunderfitt bara. En hugarfarið er öðruvísi hjá mér núna, þó erfitt sé að skilgreina það og ennþá erfiðara að komast að því út af hverju það er.

En stelpur... hvar eruði? :P Mig er farið að langa í hitting...

Ég er svo dugleg!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7